Ef land/svæði þitt er ekki að finna á listanum, eða ef þú lendir í vanda við að hringja í gjaldfrjálsu númerin skaltu hringja í númerið +1-303-967-1096 og biðja um að viðtakandi greiði fyrir símtalið. (Til að biðja um að viðtakandi greiði fyrir símtalið þarf að nota símafyrirtækið á viðkomandi svæði.)
Hefurðu týnt korti eða hefur því verið stolið?
Hringdu í okkur
3 auðveld skref til að fá nýtt kort í staðinn
1. Hafðu samband við okkur hvenær sem er
Við getum aðstoð þig í gegnum spjall eða síma. Smelltu á spjallhnappinn eða finndu símanúmerið, veldu bara landið sem þú hringir frá í reitnum hér að ofan.
2. Gerðu kortið þitt óvirkt
Fulltrúi Visa mun gera glataða eða stolna kredit- eða debetkortið þitt óvirkt og láta bankann þinn strax vita. Ef kortinu þínu var stolið getur þetta hjálpað við að koma í veg fyrir svik.
3. Fáðu nýtt kort
Visa mun vinna með bankanum þínum til að láta þig hafa nýtt debet- eða kreditkort og senda það til þín innan 24 til 72 klukkustunda.
Ef um neyðartilvik er að ræða
Við getum gert ráðstafanir til að útvega þér neyðarkort eða reiðufé innan skamms tíma. Ef þú hringir í okkur getum við læst kortinu þínu (ef kortanúmerið er þekkt) og tengt þig við fjármálastofnun þína/bankann þinn. Síðan, eftir að bankinn hefur veitt samþykki, geturðu líka fengið neyðarkort í stað gamla kortsins innan eins til þriggja virkra daga.* Að öðrum kosti getum við annast um að reiðufé verði tiltækt á staðsetningu nálægt þér, venjulega innan nokkurra klukkustunda frá samþykki bankans þíns.
*Ákveðnar takmarkanir eiga við
Algengar spurningar
-
Fulltrúi Visa getur aðstoðað þig við að tilkynna um glatað eða stolið kort. Spjallaðu við okkur eða hringdu í okkur í gegnum alþjóðlegt gjaldfrjálst númer þíns lands/svæðis í fellivalmyndinni efst á þessari síðu.
-
Fulltrúi Visa getur aðstoðað þig við að tilkynna bankanum þínum um svik. Spjallaðu við okkur eða hringdu í okkur í gegnum alþjóðlegt gjaldfrjálst númer þíns lands/svæðis í fellivalmyndinni efst á þessari síðu.
-
Hafðu strax samband við bankann þinn. Ef þú þarft aðstoð við að finna númer hjá bankanum þínum svo þú getir lokað kortinu þínu, spjallaðu þá við okkur eða hringdu í okkur í gegnum alþjóðlegt gjaldfrjálst númer þíns lands/svæðis í fellivalmyndinni efst á þessari síðu.
-
Stefna Visa um enga skaðabótaábyrgð (Zero Liability Policy)* er trygging okkar fyrir því að þú munir ekki bera ábyrgð á óheimilum gjaldfærslum sem gerðar eru með þínum reikningi eða reikningsupplýsingum. Þú nýtur verndar ef Visa kredit- eða debetkortið þitt glatast, því er stolið eða það notað á sviksamlegan hátt, á netinu eða utan nets.
* Stefna Visa um enga skaðabótaábyrgð á ekki við ákveðin viðskiptakort og færslur á nafnlausum fyrirframgreiddum kortum eða færslur sem ekki eru meðhöndlaðar af Visa. Korthafar verða að gæta varúðar og vernda kort sín. Einnig verða þeir að tilkynna fjármálastofnunni sem gefur út kortið samstundis um alla óleyfilega notkun. Hafðu samband við kortaútgefanda til að fá frekari upplýsingar.
-
Visa getur gert ráðstafanir svo að þú getir nálgast reiðufé á staðsetningu í nágrenni við þig. Þannig geturðu haldið áfram eyðslu þegar þú bíður eftir endurnýjun á korti, þegar þú lendir í vandamálum vegna kortasamþykktar eða þegar þig vantar einfaldlega reiðufé. Spjallaðu við okkur eða hringdu í okkur í gegnum alþjóðlegt gjaldfrjálst númer þíns lands/svæðis í fellivalmyndinni efst á þessari síðu.
-
Ef kortið þitt glatast, því er stolið, það verður fyrir skemmdum eða ef öryggi þess er ógnað, munum við vinna með fjármálastofnun þinni til að samþykkja og hraða afhendingu á neyðarkorti til þín. Fulltrúar Visa Global Customer Assistance-þjónustu eru reiðubúnir til aðstoðar. Spjallaðu við okkur eða hringdu í okkur í gegnum alþjóðlegt gjaldfrjálst númer þíns lands/svæðis í fellivalmyndinni efst á þessari síðu.
-
Fyrirspurnarþjónusta Visa fyrir korthafa stendur til boða allan sólarhringinn og getur komið þér í samband við fjármálastofnun þína vegna reikningstengdra fyrirspurna til að veita almennar upplýsingar varðandi Visa eða tengt þig við þjónustuveitendur ef þörf er á aðstoð varðandi kortafríðindi þín. Spjallaðu við okkur eða hringdu í okkur í gegnum alþjóðlegt gjaldfrjálst númer þíns lands/svæðis í fellivalmyndinni efst á þessari síðu.